Þingverk ehf. er alhliða byggingaverktaki sem sérhæfir sig í málningarvinnu. Fyrirtækið var stofnað árið 2021 og er með verkstæði og skrifstofu að Desjamýri 13. Hjá fyrirtækinu starfar öflugt teymi starfsmanna og undirverktaka sem býr yfir víðtækri þekkingu á sviði byggingar og viðhaldsframkvæmda. Þingverk leggur mikla áherslu á að skapa öruggt og metnaðarfullt starfsumhverfi sem skilar vandaðri og áreiðanlegri þjónustu til viðskiptavina. Eigandi fyrirtækisins er Jakub Warzycha, löggildur málarameistari.